|
Stofnfundur 27. feb. 2010 |
|
Samtök um auðlindir í almannaþágu. Laugardaginn 27. febrúar 2010 var haldinn stofnfundur samtaka um auðlindir í almannaþágu. Á fundinum var samþykkt að samtökin fengju nafnið Þjóðareign - samtök um auðlindir í almannaþágu. Að stofnun samtakanna kom margt af því fólki sem verið hefur í eldlínunni í baráttunni fyrir réttlátara fiskveiðistjórnunarkerfi. Á fundinum var komist einróma að þeirri niðurstöðu að eitt af markmiðum samtakanna væri að knýja á um að kvótakerfið yrði sett í dóm þjóðarinnar í almennri þjóðaratkvæðagreiðslu. Þrátt fyrir vilja mikils meirihluta þjóðarinnar til breytinga í réttlætisátt hefur litlu sem engu verið áorkað í þá veru. Því var fundurinn sammála um að eina leiðin til réttlætis sé að þjóðin fái úrskurðarvaldið í þessu stærsta sameiginlega hagsmunamáli sínu. Á þann hátt væri hægt að leiða til lykta ágreiningsefni sem sundrað hefur þjóðinni um langt skeið.
Ef byggja á hið nýja Ísland þarf þjóðin að treysta því að hún hafi úrskurðarvald um brýnustu hagsmunamál sín. Hið nýja Ísland þarf að vera byggt á stoðum réttlætis, jafnræðis þegnanna, mannréttindum og raunverulegu lýðræði. Valdið þarf að færa til fólksins í landinu. Því er fyrsta verk samtakanna að fara út í víðtæka undirskriftasöfnun til að krefjast þess að þjóðin fái í hendur vald til að ákveða hvernig hún vill að staðið verði að úthlutun sameiginlegra auðlinda þjóðarinnar nú og um ókomna framtíð. Þjóðin verður að fá að velja hvort hún sættir sig við núverandi forréttindakerfi sem byggir á ójafnræði, spillingu og mannréttindabrotum.

|