|
Þjóðareign – Samtök um auðlindir í almannaþágu
1. gr. Nafn samtakanna. Nafn samtakanna er Þjóðareign – Samtök um auðlindir í almannaþágu.
2. gr. Heimili og varnarþing. Fellahvarf 12, 203 Kópavogi.
3. gr. Tilgangur og markmið.
- Að berjast fyrir að þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram um breytingar og afnám núverandi kvótakerfis í fiskveiðum.
- Að berjast fyrir að eignarréttur íslensku þjóðarinnar á náttúruauðlindum verði með ótvíræðum hætti skráður í stjórnarskrá lýðveldisins.
- Að berjast fyrir réttlátri og sanngjarnri nýtingu þjóðarauðlinda á grundvelli atvinnufrelsis, jafnréttis og mannréttinda.
4. gr. Félagsaðild Öllum einstaklingum 16 ára og eldri sem aðhyllast tilgang og markmið samtakanna er frjálst að ganga í samtökin.
5. gr. Aðalfundur. Aðalfundur samtakanna skal haldinn árlega ekki síðar en 30 apríl ár hvert. Dagskrá aðalfundar er eftirfarandi:
- Skýrsla stjórnar um starfsemi á liðnu starfsári.
- Lagðir fram endurskoðaðir reikningar samtakanna.
- Reikningar samtakanna bornir upp til samþykktar.
- Stjórnarkjör
- Kosning skoðunarmanna reikninga félagsins
- Ákvörðun um félagsgjald
- Önnur mál
6. gr. Stjórn. Stjórn félagsins skal skipuð 15 einstaklingum kosnum til eins árs í senn. Formaður skal kosinn sérstaklega. Verði atkvæði jöfn í formanns- eða stjórnarkjöri skal hlutkesti ráða. Stjórn skiptir sjálf með sér verkum.
7. gr. Skoðunarmenn Kosnir skulu tveir félagslegir skoðunarmenn reikninga samtakanna.
8. gr. Starfsemi samtakanna. Stjórn samtakanna skal gangast fyrir víðtækri kynningu á baráttumálum samtakanna. Stjórn er heimilt að stofna félög í byggðarlögum og landshlutum eftir því sem hentar hverju sinni. Stjórn samtakanna er æðsta vald samtakanna á milli aðalfunda og hefur hún vald til að gera hvaða þær löglegu ráðstafanir sem hún metur æskilegar til að vinna markmiðum samtakanna brautargengi.
9. gr. Breytingar á samþykktum samtakanna. Til að breyta samþykktum samtakanna þarf 2/3 fundarmanna á aðalfundi að greiða breytingartillögum atkvæði sitt.
10. gr. Félagsgjald. Félagsgjald skal ákveðið á aðalfundi.
11. gr. Stofnfundur, gildistaka. Stofnfundur samtakanna skal haldinn fyrir 30 mars 2010, þar skal kosin stjórn samtakanna svo sem samþykktir þess gera ráð fyrir. Samþykktirnar taka gildi frá og með stofnfundi samtakanna.
|