|
Auðlindir í almannaþágu Íslendingar hafa oft háð harða baráttu á umliðnum öldum fyrir því að aðrar þjóðir viðurkenndu eignar- og nytjarétt á náttúruauðlindunum. Íslendingar hafa í þeirri baráttu komið fram sem ein heild og litið á náttúruauðlindir landsins sem heilaga sameign sína sem landsmönnum öllum beri skylda til að standa vörð um. Nytjastofnar á Íslandsmiðum eru sameign íslensku þjóðarinnar. Íslandsmið hafa verið sameign þjóðarinnar frá öndverðu. Nýting fiskimiða landsins hefur verið mikilvægasta náttúruauðlind þjóðarinnar og lagt drjúgan skerf að framförum og velsæld. Með lögum um stjórn fiskveiða og framsali ríkisvaldsins á sameign þjóðarinnar til einstakra manna og félaga án þess að gjald komi fyrir er brotið gegn eignarrétti þjóðarinnar og horfið frá réttlæti í samfélagi frjálsra einstaklinga að úthluta takmörkuðum gæðum á grundvelli jafnræðis borgaranna. Þrátt fyrir ákvæði 1.gr laga um stjórn fiskveiða sem segir að nytjastofnar á Íslandsmiðum séu sameign þjóðarinnar og úthlutun veiðiheimilda samkvæmt lögunum myndi ekki eignarrétt hefur fiskveiðiauðlindin verið nýtt þannig undanfarna áratugi að þessi sameign íslensku þjóðarinnar er að hverfa úr eign íslensks almennings. Þetta er brot á mannréttindum, misbýður réttlætiskennd fólks og samræmist ekki hagsmunum þjóðarinnar eða frjálsu markaðskerfi. Lögin um stjórn fiskveiða eru andstæð reglum sem hafa verið frá landnámsöld til setningar kvótalaganna um nýtingu fiskimiðanna. Sjálfstæðisbarátta þjóðarinnar og sókn til lýðveldis var háð til að losna undan erlendri áþján og losa þjóðina undan forréttindakerfi fyrri alda. Frelsi, réttlæti og jafnrétti allra til atvinnu, búsetu, menntunar og velsældar hafa verið hornsteinar íslensks samfélags. Með lögum um stjórn fiskveiða er vikið frá þessari þjóðfrelsisbaráttu og höft, forréttindi, ójöfnuður og ranglæti koma í stað þess áunna frelsis sem þjóðin hafði barist fyrir og öðlast. Íslendingar mega ekki samþykkja brot á grundvallarréttindum þjóðarinnar. Við skorum á alla Íslendinga hvar í flokki sem þeir standa að taka saman höndum með okkur til baráttu fyrir því að þjóðin öll njóti réttláts arðs af sameign sinni á Íslandsmiðum og hámarksarðsemi af fiskveiðum á Íslandsmiðum á grundvelli atvinnufrelsis, markaðslausna og jafnréttis. Við skorum á þig að standa með okkur í þessari baráttu. |