| Ásmundur Jóhannsson |
|
Alþýðuhetjan og hugsjónamaðurinn Ásmundur Jóhannsson úr Sandgerði lést í endaðan janúar 2010, 67 ára að aldri. Í stað greinaskrifa í blöð og hefðbundinna baráttuaðferða sem lítinn árangur hafa borið í baráttunni við kvótakerfið sagði Ásmundur kerfinu stríð á hendur er hann réri ítrekað til fiskjar án aflaheimilda sumarið 2008. Leiddi það til ákæru á hendur Ásmundi og var bátur hans innsiglaður af yfirvöldum allt þar til hann lést. Ásmundur eignaðist marga stuðningsmenn með aðgerðum sínum og var hann hylltur sem hetja þegar hann sigldi inn í höfnina í Sandgerði. Fékk Ásmundur viðurnefnið „kvótalausi sjómaðurinn“ í kjölfarið. Vandræðagangur yfirvalda einkenndi meðferð máls hans, en heilt ár leið frá því hann var stöðvaður af lögreglu og bátur hans innsiglaður og þar til ákæra var birt honum. Þann 25. febrúar 2010, aðeins fáeinum vikum eftir andlát Ásmundar, stóð til að mál hans yrði tekið til efnismeðferðar af íslenskum dómstólum. Til þess kom hins vegar ekki vegna andláts hans. Hugsjón Ásmundar um réttlátara kvótakerfi lifir þó enn.
|