| Fréttatilkynning 27. mars |
|
|
|
| Skrifað af: Administrator |
| Laugardagur, 27. mars 2010 20:11 |
|
Flokksstjórnarfundur Samfylkingarinnar var haldinn laugardaginn 27. mars kl: 13:00 á hótel Loftleiðum. Fundinn sóttu þrír stjórnarmenn úr Þjóðareign - samtökum um auðlindir í almannaþágu, þeir Eiríkur Stefánsson, Lúðvík Kaaber og Þórður Már Jónsson. Þeir lögðu fram tillögu um að fram færi þjóðaratkvæðagreiðsla um fiskveiðistjórnkerfið á Íslandi. Eftirfarandi tillaga var samþykkt samhljóða.
1. Flokksstjórn Samfylkingarinnar styður hugmyndir Jóhönnu Sigurðardóttur, formanns Samfylkingarinnar, um að fram fari þjóðaratkvæðagreiðsla um íslenska fiskveiðistjórnkerfið. 2. Nýtt fiskveiðistjórnkerfi verði byggt á atvinnufrelsi og mannréttindi verði virt í samræmi við álit sem Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna sendi íslensku ríkisstjórninni í október 2007. 3. Tryggt verði í nýjum lögum að eðlilegur arður af fiskveiðiauðlindum Íslands verði nýttur í almannaþágu en ekki í þágu sérhagsmuna eins og hingað til.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og formaður Samfylkingar ítrekaði fyrri yfirlýsingar sínar á fundinum þegar hún lýsti því yfir í ræðu sinni að hún telji það vera góða "leið til þess að útkljá áratuga deilur um innköllun aflaheimilda og endurúthlutun þeirra að láta kjósendur um að leiða málið til lykta í þjóðaratkvæðagreiðslu". Þá sagði Jóhanna í lokaorðum sínum á fundinum að möguleg þjóðaratkvæðagreiðsla gæti farið fram næsta haust samhliða þjóðaratkvæðagreiðslu um stjórnlagabreytingar.
Virðingarfyllst: Framkvæmdaráð Þjóðareignar - Samtaka um auðlindir í almannaþágu. |
| Síðast uppfært: Laugardagur, 27. mars 2010 21:08 |