| Koma bankarnir í veg fyrir auknar veiðar - Kristinn P. |
|
|
|
| Skrifað af: Administrator |
| Þriðjudagur, 18. maí 2010 09:38 |
|
Nýi Landsbanki virðist hafa yfirtekið allt of háar skuldir sjávarútvegs - af gamla Landsbanka. Hver stjórnaði því dellumauki - og þarf þá ekki að rifta þeirri dellu?
En tekið skal fram að þessi gjörningur (yfirtaka skulda frá gamla Landsbanka yfir í Nýja - var og er á ábyrgð núverandi ríkisstjórnar... .. enda hefur aldrei skipt máli hvaða ríkisstjórn situr þegar viðhalda skal braskdeild kvótakerfisins... Voru allt of háar skuldir sjávarútvegs - hugsanlega yfirteknar vísvitandi.... - ...til að geta auðveldlega hótað því að Nýi Landsbankinn "færi á hausinn"... ef eðlilegar lagfæringar væri gerðar á "braskdeild" kvótakerfisins eins og t.d:
Núverandi fyrirkomulag - brask með aflaheimildir (bara í reykfylltum bakherbergjum -) ...hafa ræktað upp gjörspillta viðskiptahætti með aflaheimildir - að því er virðist til að þeir sem hafa yfir mestum aflaheimildum að ráða - (meiri en þeir veiða sjálfir) geti sífellt skarað til sín meira með "löglegu samráði" (kvótabrask) - ("mylla mylla - ég áðetta og máðetta") alla vega fer fram afskiptalaust brask með aflaheimildir skv. liðum 1. 2. og 3. o.fl.... og það "tjúnnar upp" leiguverðið - ásamt "aðstoð frá Hafró við að skera niður aflaheimildir á forsendum sem ekki standast líffræðilega fiskveiðistjórn. Tilgangurinn virðist m.a. sá - með núverandi "fiskveiðistjórn" að hafa aflaheimildir sem lægstar - til að hækka leiguverð ....og sumir virðast ótrúlega áhugasamir fyrir því að aflaheimildir séu ALLS EKKI auknar.... - frekar skornar niður - eins og ýsan á s.l. ári og hvað gerðist.... ... leigan á ýsukvóta hækkaði þá úr um 40 kr/kg - í 200 kr/kg um 500% ..... (bravó!!) Svokallaðar "greiningardeildir bankanna" virðast einnig ótrúlega áhugasamar um að auka ekki aflaheimildir - ...því... þá lækki leiguverðið - og loftbóluveðin verði þá aftur í uppnámi... Fiskveiðistjórn sem virðist aðallega hafa það "markmið" - að hafa aflaheimildir minni frekar en meiri.... hlýtur að vera stórgölluð - feig - skandall - eða hvað? Er ég að misskilja eitthvað - eða ..af hverju virðist Nýi Landsbanki hafa yfirtekið of háar skuldir sjávarútvegs af þeim gamla - af hverju á ekki skuldaskellurinn frekar að lenda á þeim gamla Landsbanka og skuldir greinarinnar lækkaðar þannig - svo auka megi þá aflaheimildir án þess að "allt hrynji"? Ég bara spyr Heimild: http://kristinnp.blog.is/blog/kristinnp/entry/1055480/ |
| Síðast uppfært: Þriðjudagur, 18. maí 2010 09:41 |