| Loforð um innköllun og endurráðstöfun aflaheimilda - ÁLIT |
|
|
|
| Skrifað af: Administrator |
| Miðvikudagur, 14. júlí 2010 13:35 |
|
Frá því samstarfsyfirlýsing ríkisstjórnarinnar var lögð fram hefur fólk talið sig geta gengið út frá því að yfirlýsingin verði virt. Af yfirlýsingunni má ráða að hefja eigi innköllun aflaheimilda þann 1. september næstkomandi. Nú hafa ákveðnir stjórnarliðar komið fram og sagt að aldrei hafi staðið til að innköllunin hefjist þann 1. september, heldur að þá skuli aðeins liggja fyrir áætlun um hvernig innköllunin skuli fara fram. Segja þeir þetta koma skýrt fram í ríkisstjórnarsáttmálanum. Í samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar segir um endurskoðun laga um fiskveiðar: „Endurskoðunin mun verða unnin í samráði við hagsmunaaðila í sjávarútvegi og miðað við að áætlun um innköllun og endurráðstöfun taki gildi í upphafi fiskveiðiárs 1. september 2010.“ Ekki er hægt að skilja þetta orðalag með öðrum hætti en upphafstími fyrningar sé 1.9.2010. Orðalagið skýrist betur af samhenginu í stefnuyfirlýsingunni, en orðin „áætlun um innköllun“ vísa ekki til annars en þeirrar stefnumörkunar sem mótuð er og samið um milli stjórnarflokkanna í upphafi stjórnarsamstarfs. Þá verður áætlun til um innköllun og ljóst af orðalaginu að framkvæmdin eigi að hefjast og taka gildi í upphafi fiskveiðiársins 1.9.2010. Miðað við orðalag samstarfsyfirlýsingarinnar verður því að skýra þetta ákvæði með þeim hætti að stjórnarflokkarnir hafi samið um og sett fram það markmið að hefja innköllun og endurráðstöfun aflaheimilda frá og með 1.9.2010. Annar skýringarkostur er ekki tækur. Ef það vefst fyrir einhverjum hvað orðin að „taka gildi“ fela í sér, þá er að finna skýringu á því í Lögfræðiorðabók með skýringum[1], en þar kemur fram að „gildistaka“ þýði „það að t.d. samningur eða lög taka gildi og eftir það þarf fólk að fara eftir þeim“. Í ákvæðinu felst því bersýnilega ekki eingöngu að áætlunin skuli liggja fyrir 1. september 2010, heldur skal hún taka gildi á þeim tíma. Í því felst að innköllun og endurráðstöfun skal hefjast á því tímamarki. Öðru vísi getur áætlun stjórnvalda ekki tekið gildi. Ekki er annað að sjá en að þessi skilningur á orðum stjórnarsáttmálans hafi verið óumdeildur hingað til. Hann er einnig studdur skýrslu íslenskra stjórnvalda til Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna frá því í apríl 2010. Þar segjast íslensk stjórnvöld ætla að hefja innköllun kvótans 1. september næstkomandi, með þessum orðum: „... it is anticipated that a schedule for the recall and re-allocation of fishing permits should take effect at the beginning fo the fishing season on 1 September 2010“. Það er þeim áhyggjuefni, sem gera sér ljóst að fiskveiðstjórnkerfið felur í sér brot á bæði íslenskum stjórnskipunarlögum og alþjóðalögum, ef fyrirsvarsaðilar Íslendinga á alþjóðavettvangi hafa uppi ósannindi gagnvart alþjóðlegum mannréttindastofnunum. Það leikur því enginn vafi á hvað felst í ofangreindri stefnumörkun ríkisstjórnarinnar um endurskoðun laga um fiskveiðar. Hún hefur lýst því yfir að innköllun aflaheimilda og endurúthlutun skuli fara fram í fyrsta sinn 1.9.2010, við upphaf fiskveiðiárs, samkvæmt þeirri áætlun sem þá hafi verið unnin og liggi fyrir.
Jón Magnússon, hrl. Lúðvík Kaaber, hdl. Þórður Már Jónsson, lögfræðingur
[1] Bókaútgáfan Codex, 2008. |
| Síðast uppfært: Miðvikudagur, 14. júlí 2010 19:13 |